Dk eftir smá...

July 12th, 2007 (366 views )

Eftir 6 tíma mun ég vera um borð í flugvél á leið til hinnar sólríku Danmerkur, sem er reyndar frekar dimm þessa dagana.
Eftir 10 tíma ætla ég að vera borðandi á Jensens Böfhús og drekka danskan bjór
Kem heim á mánudag, aftur út 2 vikum seinna, úti í Noregi þá í viku, aftur heim og 2 vikum seinna verður eytt 8 dögum í Konstantínopel (Istanbúl í Tyrkalandi).

Góðir tímar framundan :)

Já, og ég á afmæli á laugardaginn ;)

Smá hrekkjudagur í vinnunni

July 8th, 2007 (342 views )

Það er alltaf gaman að vinna hjá Exton. Sérstaklega þegar það tekur við smá stríð milli tveggja einstaklinga vegna ýmissa mála. Bragi byrjaði á að hrekkja mig með því að Post-It-a borðið mitt og tölvuna. Man ekki alveg hvað ég gerði svo en Bragi setti þá nokkur korn af frauðplasti á borðið mitt...
Minns þá auðvitað fór í hernaðarlega hug og ég safnaði innpökkunarfrauðplasti í nokkra daga. Þetta er það sem ég gerði!!

Hrekkurinn

Ég setti um það bil þrjá fulla svarta plastpoka af frauðplasti inní bilinn hans. Það þótti víst ekkert gaman að þrífa þetta því þetta fór víst svakalega mikið og vel undir sætin og á aðra staði sem leiðinlegt var að þrífa.
En auðvitað varð Bragi ekki nógu kátur og þurfti að hefna sín aftur og setti allt sem ég tróð í bílinn hans á skrifborðið mitt.. reyndar er ég smá búinn að hreinsa til þarna og er meiriparturinn á gólfinu ;)

hinn hrekkurinn

Alltaf gaman í vinnunni ;)

Doddi hinn þunni...

June 29th, 2007 (276 views )

Í fyrradag var staffadjamm hjá Exton og þá auðvitað var drykkja með. Ákveðið var að fara í diskókeilu sem er reyndar bara nokkuð skemmtilegt. Sérstaklega þegar maður er að vinna og liðið manns líka;)
Maður byrjaði bara á einum bjór og hætti að telja eftir 7 bjóra og eitt skot. Við skulum bara segja að ég skemmti Dodda og gestum vel þegar ég kom heim um miðnættið. Við Bragi tókum vel á því og það fór kútur ofan í þessa 12 sem voru að drekka.
Við spiluðum 3 leiki og það var liðakeppni. Þá voru 3 brautir notaðar og um 5-6 manns á hverri braut. Ég byrjaði í 107 stigum og í 4 sæti yfir heildina. En svo náði ég 141 stigi í næstu tveim leikjum og það komst enginn nálægt mér. Hef ekki spilaði jafn vel keilu í langan tíma og vill þakka áfengi þennan merka áfanga (það var edrú fólk þarna líka svo nei, það voru ekki allir aðrir svo fullir að þeir gátu ekki neitt ;) ).

Doddi átti afmæli í gær og óska ég honum hérmeð til hamingju með það.
Þó er það ekki frásögu færandi nema fjölskyldan hans kom í heimsókn og ég var svo góður að elda ofan í liðið. Þetta tókst ágætlega og fyrsta fjölskylduboðið er yfirstaðið og það bara með prýðisbrag.

Svo kom skemmtilegi hlutinn...
Við Doddi fórum og hittum Hildigunni og Elínu, vinkonur Dodda, á Sólon. Þar sem menn og herramenn gerðu í því að bjóða afmælisdrengnum skot. Trúbadorinn söng afmælissönginn fyrir Dodda og tók salurinn vel á með (það var ekki svo gott með næsta afmælisbarn en ég held að það hafi sungið eitt ásamt trúbbanum). Margt gott fólk kíkti á kallana.
Doddi var samt ekkert að spara að fara á barinn(ég var edrú vegna fylleríis kvöldið áður) og um kl lokunartíma hafði hann tekið (ritskoðað) mörg skot á (ritskoðað) löngum tima sem var gaman af því við fórum út af staðnum....

// Ritskoðað

Við segjum bara að það er frekar súr lykt heima eftir tilbrigði kvöldsins. En þetta var ógeðslega gaman :)

Ætti að kommenta oftar á veðrið...

June 26th, 2007 (259 views )

.. allavegna virðist sólin ekki að vera að fara strax.

Taka mér smá frí í kvöld (surprise).. kíkja á stóra gula helvítið!

Góða veðrið...

June 24th, 2007 (264 views )

... fauk yfir í gær. Allavegana á Granda. Sumarið er búið ;)

Email Permalink1 comment

:: Next Page >>

| Next >

September 2010
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      
Archives

Categories

Who's Online?

  • Guest Users: 1

Misc

powered by
b2evolution